Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur dregið til baka rauða spjaldið sem John Mensah, varnarmaður Sunderland, fékk að líta í tapleik Sunderland gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fyrradag.
Ganamaðurinn fékk rauða spjaldið eftir viðskipti hans við Luis Suárez framherja Liverpool á 82. mínútu og átti yfir höfði sér leikbann. Sunderland áfrýjaði úrskurði Kevin Friend dómara og í dag komst aganefndin að þeirri niðurstöðu að leikmaðurinn þurfi ekki að taka út leikbann.