Jóhannes Karl Guðjónsson og félagar hans í Huddersfield styrktu stöðu sína í öðru sæti ensku 2. deildinni í knattspyrnu með 3:0 sigri gegn Notts County. Jóhannes lék allan tímann á miðjunni hjá Huddersfield sem hefur 70 stig, er 10 stigum á eftir toppliði Brighton en fjórum stigum á undan Peterbrough sem er í þriðja sætinu. Tvö efstu liðin komast upp í 1. deildina.