Carlo Ancelotti knattspyrnustjóri Chelsea sagði eftir ósigur sinna manna gegn Manchester United í Meistaradeildinni að liðið hefði átt að fá dæmda vítaspyrnu undir lok leiksins þegar Patrice Evra braut á Ramires innan vítateigs.
,,Þetta var púra víti og ég sagði dómaranum það eftir leikinn. Þrátt fyrir ósigurinn tel ég að við eigum enn möguleika á að komast áfram. Við vorum óheppnir að skora ekki. Boltinn fór í stöngina og Edwin van der Sar varði stórkostlega frá Torres. Það verður erfitt að fara á Old Trafford en við unnum þar á síðustu leiktíð þegar við þurftum þess,“ sagði Ancelotti.