Joe Hart, markvörður Manchester City, sagði að allir tengdir félaginu væru í skýjunum eftir sigurinn á Manchester United í enska bikarnum í dag en þar tryggði City sér sæti í bikarúrslitunum í fyrsta skipti í 30 ár.
„Þetta skiptir okkur öllu máli, sjáið okkur bara. Strákarnir eru í skýjunum, stuðningsmennirnir eru í skýjunum og starfsliðið er í skýjunum. En við höfum ekkert unnið ennþá. Við höfum hinsvegar komið okkkur í góða stöðu í deildinni og í bikarúrslitin, og ég yfir mig ánægður vegna stuðningsmanna okkar," sagði Hart við BBC.