Arsene Wenger segir að Gareth Bale og Rafael van der Vaart séu lykilmennirnir á bakvið góðan árangur Tottenham í vetur. Erkifjendurnir í Norður-London mætast í úrvalsdeildinni á White Hart Lane í kvöld.
„Van der Vaart hefur fært Tottenham það sem þá vantaði á fremsta þriðjungi vallarins. Gareth Bale hefur spilað geysilega vel í allan vetur og það var ekki skrýtið að hann skyldi vera valinn knattspyrnumaður ársins," sagði Wenger á vef félagsins.
Hann sagði að sínir menn færu alls óhræddir í slaginn við nágrannana í kvöld. „Við þurfum ekki að óttast neitt. Aðalmálið er að mæta til leiks með löngunina til að spila vel og sigra. Við munum ekki bíða átekta og leyfa Tottenham að vera með boltann, við reynum sjálfir að spila og sækja. þetta er nágrannaslagur og það er mikið í húfi. Að sjálfsögðu er þetta mikil prófraun, ein af mörgum sem liðið hefur gengið í gegnum á þeim 15 árum sem ég hef verið hér," sagði Wenger.
Arsenal verður að vinna í kvöld til að halda í við Manchester United í baráttunni um enska meistaratitilinn. Tapi liðið stigum á White Hart Lane færist United enn nær sínum 19. titli.
Manchester United er með 70 stig og á fimm leiki eftir en Arsenal er með 63 stig og á sex leiki eftir. Takist Arsenal að sigra skilja fjögur stig liðin að en United á eftir að mæta bæði Arsenal og Chelsea á lokasprettinum í deildinni.
Tottenham er í 5. sætinu með 53 stig og í harðri baráttu um fjórða sætið og þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu. Manchester City er með 56 stig en hefur leikið einum leik meira en Tottenham, sem getur því jafnað City að stigum í kvöld.