Hermann skrifaði undir

Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson. mbl.is/Eggert

Hermann Hreiðarsson skrifaði í dag undir nýjan eins árs samning við enska 1. deildarliðið Portsmouth að því er fram kemur á vef félagsins. Hermann, sem er 36 ára gamall, hefur leikið með Portsmouth frá árinu 2007 en þangað kom hann frá Charlton.

Hermann lék 29 leiki með Portsmouth á síðustu leiktíð en hann sneri aftur inn í liðið eftir sjö mánaða fjarveru vegna meiðsla í hásin. Eyjamaðurinn sterki hefur leikið 121 leik með félaginu og eftirminnilegasta stund hans með félaginu er þegar hann hampaði bikarmeistaratitlinum árið 2008.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert