Eiður Smári Guðjohnsen er með tilboð í höndunum frá West Ham og Swansea, og fleiri möguleikar eru í stöðunni hjá honum. Þetta kom fram í fréttum Bylgjunnar nú í hádeginu og er haft eftir Arnóri Guðjohnsen, föður Eiðs og umboðsmanni.
Eiður hefur verið orðaður við West Ham og Swansea síðustu daga. West Ham féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor en Swansea vann sér hinsvegar sæti þar.