Brendan Rodgers knattspyrnustjóri nýliða Swansea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu segist vera hættur að reyna að fá Eið Smára Guðjohnsen til liðs við félagið.
,,Eiður kemur ekki. Ég ræddi við hann í gærkvöld og ég held að hann fari til West Ham,“ segir Rodgers í viðtali á fréttavef Sky.
Reiknað er með því að Eiður gangist undir læknisskoðun hjá West Ham á morgun og skrifi svo undir eins árs samning að henni lokinni.