Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur staðfest á heimasíðu félagsins að búið sé að samþykkja tilboð Evrópumeistara Barcelona í miðjumanninn Cesc Fabregas.
Þar með er sögunni endalausu um hugsanlega endurkomu Fabregas til Barcelona loksins að ljúka. Fabregas hefur verið magnaður fyrir Arsenal og meðal annars skorað 57 mörk í 303 leikjum fyrir liðið.
„Við vildum aldrei láta Cesc fara og þannig er það enn. Hins vegar skiljum við það að Cesc skuli vilja fara til heimafélagsins síns og höfum samþykkt tilboð Barcelona. Við þökkum Cesc fyrir allt það sem hann hefur gert fyrir Arsenal og óskum honum alls hins besta,“ sagði Wenger.