Morten Gamst ekki gegn Íslandi?

Morten Gamst Pedersen í baráttu við Rúrik Gíslason.
Morten Gamst Pedersen í baráttu við Rúrik Gíslason. mbl.is/Eggert

Morten Gamst Pedersen, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Blackburn Rovers, gæti misst af leiknum gegn Íslandi í undankeppni EM í Ósló næsta föstudagskvöld.

Pedersen er farinn af velli vegna meiðsla í fyrri hálfleik í viðureign Blackburn og Everton í úrvalsdeildinni og þar með er orðið tvísýnt um þátttöku hans í landsleiknum. Hann er 29 ára gamall kantmaður og einn af reyndari leikmönnum norska landsliðsins með 69 landsleiki og 15 mörk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert