Wenger í stúkunni í kvöld

Arsene Wenger.
Arsene Wenger. Reuters

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal þarf að gera sér að góðu að fylgjast með leik sinna manna gegn þýska liðinu Dortmund í Meistaradeildinni frá áhorfendastúkunni í kvöld en Wenger tekur þá út fyrri leikinn af tveimur í banni sem hann var dæmdur í.

„Undirbúningurinn verður eins og áður. Við hittumst seinni partinn í dag á fundi þar sem við förum yfir hlutina en þegar við komum á völlinn þá má ég ekki fara inn í búningsklefann,“ segir Wenger.

„Ég á von á skemmtilegum leik. Við spilum sóknarleik og Dortmund líka svo þetta getur orðið aðlaðandi leikur. Dortmund-liðið er vel skipulagt og í því eru margir tæknilega góðir leikmenn. Fótboltinn í Þýskalandi er góður og lið Dortmund er þekkt fyrir góða spilamennsku á heimavelli,“ segir Wenger.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert