Wayne Rooney er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en framherji Englandsmeistaranna hefur skorað 8 mörk í fyrstu fjórum umferðunum. Þegar Rooney skoraði sitt áttunda mark í deildinni á síðustu leiktíð var 2. apríl á dagatalinu.
Rooney verður í eldlínunni á Old Trafford á sunnudaginn en þá taka Englandsmeistararnir á móti Chelsea í sannkölluðum stórleik.
United hafði betur í rimmu liðanna á Old Trafford, 2:1, á síðustu leiktíð. Sá leikur fór fram í maí og með honum nánast gulltryggði liðið sér sigur í deildinni. Manchester United hefur skorað í síðustu 32 leikjum sínum á Old Trafford. Liðið hefur unnið 30 þeirra, gert eitt jafntefli og tapað einum og það var einmitt gegn Chelsea í apríl 2010.