Dýrkeypt bræðikast Rooneys (myndband)

Rooney fékk að líta rauða spjaldið hjá dómaranum í gær.
Rooney fékk að líta rauða spjaldið hjá dómaranum í gær. Reuters

Wayne Rooney verður að öllu óbreyttu ekki með enska landsliðinu í knattspyrnu í að minnsta kosti fyrsta leik þess í úrslitakeppni EM næsta sumar eftir að hafa misst stjórn á skapi sínu eitt augnablik í leiknum gegn Svartfjallalandi í gær.

Rooney hafði misst boltann til leikmanns Svartfjallalands og sparkaði í kjölfarið viljandi aftan í leikmanninn.

Myndband af mörkunum fjórum úr leiknum og broti Rooney má sjá hér að neðan eða með því að smella hér. Brotið á sér stað eftir 3 mínútur og 20 sekúndur af myndbandinu.

Rooney hefur beðist afsökunar á atvikinu eins og lesa má um hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert