Steven Gerrard fyrirliði Liverpool verður líklega í byrjunarliðinu þegar liðið tekur á móti erkifjendum sínum í Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardaginn.
Gerrard lék sinn fyrsta leik með Liverpool í sex mánuði þegar hann kom inná sem varamaður í leik gegn Brighton í deildabikarnum en hann gekkst undir aðgerð í sumar vegna þrálátra nárameiðsla.
Gerrard var ekki valinn í enska landsliðið fyrir leikinn gegn Svartfellingum um síðustu helgi en hann hefur verið duglegur á æfingasvæðinu í landsleikjafríinu og er klár í slaginn að sögn Kenny Dalglish stjóra Liverpool.