Hermann og félagar að missa stjóra sinn

Steve Cotterill.
Steve Cotterill. Reuters

Hermann Hreiðarsson og félagar hans í enska 1. deildarliðinu Portsmouth eru að missa knattspyrnustjóra sinn, Steve Cotterill, en samkvæmt heimildum Sky Sports er hann á leið til Nottingham Forest.

Nottingham Forest hefur verið að leita að nýjum stóra eftir að Steve McClaren sagði upp störfum fyrr í þessum mánuði og Sky Sports hefur heimildir fyrir því að Forest hafi náð samkomulagi við Portsmouth um greiðslu á bótum fyrir að fá stjórann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert