Tévez fór til Argentínu án leyfis

Carlos Tévez.
Carlos Tévez. Reuters

Carlos Tévez gæti átt yfir höfði sér enn frekari refsingu frá Manchester City eftir að látið sig hverfa til Argentínu án leyfis hjá félaginu. Tévez flaug til heimalands síns í gær en fram kom í fréttum í gær að Tévez mun ekki áfrýja ákæru Manchester City á hendur honum um fimm samningsbrot.

,,Hann er farinn til að hitta fjölskyldu sína. Hún fór til Argentínu þegar Tévez var settur í bann og hann fór að hitta hana,“ sagði umboðsmaður Argentínumannsins við Sky Sports.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert