Danski knattspyrnumaðurinn Nicklas Bendtner kveðst staðráðinn í því að spila aldrei aftur með Arsenal, sem þó er enn formlegur vinnuveitandi hans. Bendtner leikur nú sem lánsmaður með Sunderland en hann skoraði fyrra mark Dana á föstudagskvöldið þegar þeir lögðu Svía, 2:0, í vináttulandsleik.
„Ég ítreka það sem ég hef áður sagt, ég fer ekki aftur til Arsenal. Þar fékk ég aldrei almennileg tækifæri og var einnig óheppinn með meiðsli. En nú vonast ég eftir því að eiga gott tímabil með Sunderland og svo er mögnuð Evrópukeppni framundan næsta sumar, sem er bara jákvætt. Ég vil síðan spila í Meistaradeild Evrópu," sagði Bendtner við PA Sport eftir sigurinn á Svíum.