Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er í vandræðum með stöðu hægri bakvarðar fyrir heimsókn liðsins gegn Norwich í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Kieran Gibbs er úr leik vegna nárameiðsla, væntanlega til áramóta, og Carl Jenkinson verður heldur ekki með vegna meiðsla í baki.
Eins og áður eru Abou Diaby, Bacary Sagna og Jack Wilshere frá keppni og tvísýnt er með Marouane Chamakh fyrir morgundaginn.
Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal sagði á fréttamannafundi í dag að sú jólagjöf sem hann vonaðist eftir væri að lið sitt myndi saxa á forskot Manchester City í deildinni fram að hátíðunum.