Rooney ekki með - Berbatov byrjar

Dimitar Berbatov fær tækifæri í kvöld.
Dimitar Berbatov fær tækifæri í kvöld. Reuters

Wayne Rooney er ekki í leikmannahópi Manchester United gegn Benfica í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Dimitar Berbatov er hinsvegar í byrjunarliðinu sem eini framherji United í leiknum sem hefst kl. 19.45 á Old Trafford.

Lið United er þannig skipað:
De Gea, Fabio, Jones, Ferdinand, Evra, Nani, Fletcher, Carrick, Valencia, Young, Berbatov.
Varamenn: Lindegaard, Smalling, Rafael, Giggs, Park, Gibson, Hernández.

Þetta er nánast úrslitaleikur C-riðilsins en liðin eru jöfn með 8 stig hvort. Basel er í þriðja sætinu með 5 stig en Otelul Galati er án stiga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert