Redknapp og Parker bestir

Harry Redknapp og Scott Parker með viðurkenningar sínar.
Harry Redknapp og Scott Parker með viðurkenningar sínar. Reuters

Verðlaunin fyrir nóvembermánuð í ensku úrvalsdeildinni fóru bæði til Tottenham. Harry Redknapp var útnefndur knattspyrnustjóri mánaðarins og miðjumaðurinn Scott Parker var valinn besti leikmaðurinn.

Tottenham hefur verið á gríðarlegri siglingu en liðið vann alla þrjá leiki sína í úrvalsdeildinni í nóvember og er komið upp í 3. sæti deildarinnar. Þetta eru önnur verðlaun Redknapps á tímabilinu en hann var útnefndur stjóri septembermánaðar.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert