Chelsea að undirbúa tilboð í Cahill

Gary Cahill er hér að skalla boltann í netið hjá …
Gary Cahill er hér að skalla boltann í netið hjá Everton. Reuters

Chelsea er að undirbúa tilboð í landsliðsmanninn Gary Cahill sem er á mála hjá Bolton að því er enskir fjölmiðar greina frá í dag. Chelsea er reiðubúið að greiða 7 milljónir punda fyrir miðvörðinn sterka og lána Bolton miðjumanninn unga, Josh McEachran.

Andre Villas-Boas, stjóri Chelsea, vill ólmur fá Cahill en eins og fram kom um helgina hefur brasilíski miðvörðurinn Alex óskað eftir því að fá að fara í janúar. Samningur Cahills við Bolton rennur út í sumar og er talið að Bolton muni taka tilboðinu því að öðrum kosti fær félagið ekkert fyrir hann þegar tímabilið er búið.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert