Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að lið sitt hafi fengið erfiðan mótherja í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en jafnframt spennandi. Arsenal dróst á móti sjöföldum Evrópumeisturum AC Milan.
,,Þetta er erfiður dráttur en spennandi og ég býst við að AC Milan geti sagt það sama. Ég met möguleika okkar 50:50. Nú þurfum við bara að halda áfram að bæta þar til að leikjunum kemur í febrúar. Við eigum góðar minningar frá San Síró en bæði þessi lið hafa verið lengi í Meistaradeildinni og spila skemmtilegan fótbolta,“ sagði Wenger en Arsenal sló AC Milan út í 16-liða úrslitunum tímabilið 2007-08.