Kenny Dalglish knattspyrnustjóri Liverpool hefur lýst yfir miklum vonbrigðum með niðurstöðu aganefndar enska knattspyrnusambandsins sem í kvöld úrskurðaði Luis Suárez í 8 leikja bann og 40 þúsund punda sekt.
„Mjög vonsvikinn með úrskurðinn í dag. Núna þarf Luis Suárez á öllum okkar stuðningi að halda. Hann má ekki vera einn á ferð," sagði Dalglish í færslu á Twitter og notaði þar tilbrigði við hið fræga stef Liverpool. Á ensku sagði hann: "Let's not let him walk alone."