Liverpool og Chelsea höfðu heppnina með sér þegar dregið var til 16 liða úrslitanna í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu í dag. Bæði lið mæta liðum úr B-deildinni á heimavelli. Liverpool tekur á móti Brighton og Chelsea fær Birmingham í heimsókn.
Drátturinn varð þessi
Liverpool v Brighton
Everton v Blackpool/Sheffield Wednesday
Chelsea v Birmingham City
Crawley Town v Stoke City
Stevenage v Tottenham Hotspur
Norwich City v Leicester City
Sunderland/Middlesbrough v Arsenal/Aston Villa
Millwall/Southampton v Bolton Wanderers