Enska B-deildarliðið Leeds United rak í dag Simon Grayson úr starfi knattspyrnustjóra félagsins í kjölfar 4:1 ósigurs á heimavelli gegn Birmingham í gær. Grayson hefur verið við stjórnvölinn hjá Leeds undanfarin þrjú ár.
Neil Redfern þjálfari unglingaliðs félagins hefur verið ráðinn til að stýra liðinu tímabundið en Leeds er í 10. sæti B-deildarinnar og hefur gengið illa síðustu vikurnar. Tapið í gær var það tíunda hjá liðinu í deildinni á tímabilinu.