Arsenal og Bolton skildu jöfn 0:0 í ensku úrvalsdeildinni en Arséne Wenger, knattspyrnustjóra liðsins, fannst ótrúlegt að hans menn hefðu ekki náð að vinna miðað við fjölda færa sem liðið fékk.
„Þegar þú skapar þér sex dauðafæri þá er erfitt að vinna ekki. Við sjáum á eftir mörgum færum en það jákvæða er að við fengum ekki á okkur mark,“ sagði Wenger og bætti við; „Við verðum að vona að sú staðreynd að við töpuðum ekki gefi okkur sjálfstraust.“
Það er spurning hvernig þessi orð Frakkans fara í stuðningsmenn Arsenal sem bjuggust væntanlega við nokkuð öruggum sigri sinna manna.
Wenger var einnig spurður út í möguleikana á sæti í Meistaradeildinni að ári eftir að hafa aðeins fengið þrjú stig úr síðustu þremur leikjum. „Trúin og löngunin er til staðar og sjálfstraustið er það líka. Við verðum að komast í gegnum erfiðan kafla og auðvitað eru erfiðir tímar framundan en við erum tilbúnir að takast á við það.
Eftir leik kvöldsins hefur Wenger aðeins unnið fimm af 12 leikjum sínum með Arsenal á Reebok vellinum, heimavelli Bolton.