Wenger: Fjórða sætið eins og titill

Arsene Wenger hefur ekki getað fagnað mörgu undanfarið.
Arsene Wenger hefur ekki getað fagnað mörgu undanfarið. Reuters

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að það yrði eins og að vinna titil að ná fjórða sætinu í ensku úrvalsdeildinni í vetur og tryggja liðinu áframhaldandi veru í Meistaradeild Evrópu.

Eftir tvo ósigra á fjórum dögum, gegn AC Milan 4:0 í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag og 2:0 gegn Sunderland í ensku bikarkeppninni á laugardag þykir ljóst að Arsenal vinni ekki titil þetta árið, sjöunda tímabilið í röð. Þá er framundan tvísýn barátta um fjórða sætið í deildinni en þar eru Arsenal og Chelsea nú hnífjöfn í 4.-5. sætinu og Newcastle og Liverpool á hælum þeirra.

„Stærstu verðlaunin eru að ná fjórða sætinu og það er áfram möguleiki. Fyrir okkur skiptir fjórða sætið öllu máli og við einbeitum okkur að því. Við töpuðum fyrir Sunderland, fyrst og fremst vegna þess að við gáfum allt í leikinn í Mílanó og þurftum að ferðast eftir það. Fyrir öll lið í heimi væri slíkt erfitt. En mér fannst við spila vel á margan hátt gegn Sunderland og ef við höldum þeim anda og náum einhverjum vopnum til baka, getum við unnið næsta leik," sagði Wenger en lið hans mætir Tottenham í nágrannaslag um næstsu helgi.

Hann sagði að meiðslavandræði settu strik í reikninginn. „Okkur vantar virkilega sterka leikmenn. Það er komið framí febrúar og Jack Wilshere og Abou Diaby hafa ekkert spilað, Per Mertesacker spilar ekki meira á tímabilinu og Andre Santos er frá keppni í þrjá mánuði. Öll lið í heimi væru í vandræðum með svona forföll. En við skulum vinna næsta leik og þá verðum við á réttri braut," sagði Wenger.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert