„Það er alltaf grimmt þegar úrslitin ráðast í vítakeppni. Það þarf hins vegar einhver að tapa. Cardiff-liðið var frábært í dag,“ sagði Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, eftir sigurinn gegn Cardiff í enska deildabikarnum.
Spurður út í frænda sinn, Anthony Gerrard, sem náði ekki að skora úr síðustu vítaspyrnu Cardiff, sagði fyrirliði Liverpool: „Annar okkar varð að sætta sig við tap og hinn að fagna. Þetta var blendin tilfinning en ég finn til með Anthony og Cardiff.“