Cardiff gengur illa að vinna leiki

Aron Einar Gunnarsson í leik með Cardiff.
Aron Einar Gunnarsson í leik með Cardiff. www.cardiffcityfc.co.uk

Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff máttu sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli gegn Burnley í ensku B-deildinni í knattspyrnu í dag.

Þar með er Cardiff í 8. sæti deildarinnar en liðið hefur átt erfitt uppdráttar í deildinni undanfarnar vikur. Sigur hefði hinsvegar lyft því uppí fjórða sætið.

Aron lék í 85 mínútur með Cardiff sem er með 58 stig en Birmingham, sem er í 4. sætinu, er með 59 stig þannig að baráttan um umspilssætin er geysihörð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert