Þýska knattspyrnufélagið Köln staðfesti rétt í þessu að þýski landsliðsframherjinn Lukas Podolski færi þaðan til enska félagsins Arsenal í sumar en hann hefur verið sterklega orðaður við það undanfarnar vikur og mánuði.
Podolski er 26 ára gamall, fæddur í Póllandi, en hann flutti með foreldrum sínum til Þýskalands aðeins tveggja ára gamall. Hann hefur verið í röðum Kölnar frá 10 ára aldri, nema hfað hann var seldur þaðan til Bayern München 2006 og sneri aftur til Kölnar 2009.
Podolski hefur skorað 43 mörk í 95 landsleikjum fyrir Þýskaland, sem er ótrúlegur leikja- og markafjöldi hjá ekki eldri leikmanni.