Didier Drogba segir erfitt að skilja við Chelsea en félagið staðfesti í dag að hann muni yfirgefa það í næsta mánuði. Drogba er 34 ára gamall og verður hans sárt saknað í liði þeirra bláu enda hefur hann reynst því ótrúlega vel þau átta ár sem hann hefur spilað með því.
,,Ég vil binda endi á allar vangavelturnar og staðfesta að ég er að fara frá Chelsea. Þetta hefur verið mjög erfið ákvörðun fyrir mig að taka og ég er mjög stoltur af því sem ég hef afrekað með því en nú er réttur tími til að takast á við nýja áskorun,“ segir Drogba á vef félagsins.
,,Laugardagurinn var sérstakur fyrir alla hjá félaginu og fyrir alla stuðningsmennina. Ég er svo stoltur að hafa átt þátt í vinna marga titla með félaginu sem hefur verið mitt heimili síðustu átta árin.“