Sjö leikmenn yfirgefa Arsenal þegar samningar þeirra við félagið renna út í sumar. Þekktastur þeirra er spænski markvörðurinn Manuel Almunia.
Leikmennirnir sjö sem hverfa á braut frá Emirates í lok næsta mánaðar eru: Manuel Almunia, Georg Brislen-Hall, Gavin Hoyte, Sean McDermott, Rhys Murphy, James Campbell og Jeffrey Monakana.
Aðeins tveir af þessum leikmönnum náðu að spila með aðalliði Arsenal, markvörðurinn Almunia sem lék samtals 175 leiki og náði að halda markinu hreinu í 70 leikjum. Gavin Hoyte kom við sögu í fjórum leikjum.