Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er sagður íhuga tilboð í tvo af leikmönnum Frakklandsmeistara Montpellier, sóknarmanninn Oliver Giroud og varnarmanninn Mapou Yanga-Mbiwa.
Forseti Lille gaf það út um helgina að báðir leikmennirnir væru falir fyrir rétt verð í sumar en Giroud verður á EM með franska landsliðinu en Yanga-Mbiwa komst ekki í lokahópinn.
Wenger er sagður í frönskum miðlum einstaklega áhugasamur um að landa Giroud sem sló í gegn í frönsku úrvalsdeildinni og var þar markahæstur.
Auk Arsenal var Giroud orðaður við FC Bayern en það er væntanlega úr sögunni fyrst Bæjarar fengu Claudio Pizzaro aftur til sín.