Kagawa til liðs við Manchester United

Shinji Kagawa.
Shinji Kagawa. AFP

Manchester United hefur náð samkomulagi við þýska meistaraliðið Borussia Dortmund um kaup á japanska landsliðsmanninum Shinji Kagawa. Þetta kemur fram á vef Manchester United í dag.

„Það er ánægjulegt að tilkynna að Manchester United hefur náð samkomulagi bæði við Dortmund og Shinji Kagawa um félagaskiptin,“ segir á vef Manchester United.

Kagawa er 23 ára gamall sókndjarfur miðjumaður sem hefur leikið með Dortmund frá árinu 2010 en þangað kom hann frá japanska liðinu Cerezo Osaka. Hann skoraði 21 mark í 49 leikjum með Dortmund í þýsku deildinni og varð þýskur meistari með því tvö ár í röð.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert