Rooney fer beint inn í liðið

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Roy Hodgson landsliðsþjálfari Englendinga hrósaði framherjum sínum sem báðir skoruðu í sigri Englendinga gegn Svíum á EM í gær, 3:2. Andy Carroll og Danny Welbeck léku í fremstu víglínu og báðir skoruðu þeir mörk en Hodgson staðfesti eftir leikinn að Wayne Rooney kæmi inn í byrjunarliðið í leiknum gegn Úkraínumönnum.

Rooney hefur lokið við að afplána tveggja leikja bann og kemur því ferskur til leiks þegar Englendingar mæta Úkraínumönnum á þriðjudaginn en Englendingum dugar jafntefli til að komast áfram í átta liða úrslitin.

„Ég var mjög ánægður með frammistöðu okkar fremstu manna en Wayne Rooney er mjög sérstakaur leikmaður og í hreinskilni sagt þá er erfitt að skilja hann útundan,“ sagði Hodgson eftir leikinn við Svía.



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert