Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United segir að Búlgarinn Dimitar Berbatov sé enn inni myndinni og fari með liðinu í æfingaferðirnar til Kína og S-Afríku.
Berbatov hefur verið sagður á förum frá United og hefur verið orðaður við lið eins og Galatasaray og Fenerbache í Tykrlandi.
„Það hefur ekkert gerst með Dimitar og hann fer með okkur í ferðirnar til Suður-Afríku og Kína. Hann er frábær fótboltamaður. Síðasta tímabil var ekki gott hjá honum því ég spilaði Wayne Rooney og Danny Welbeck meira saman og Chicharito. Ég tel að ég hafi ekki meðhöndlað Dimitar ósanngjarnt en hann er vonsvikinn yfir því að hafa ekki spilað meira,“ sagði Ferguson við MUTV sjónvarpið.