Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United vonast til að Robin van Persie verði orðinn leikmaður liðsins áður en það heldur til Everton á mánudag í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
„Það hefur verið samið um kaupverðið sem er gríðarlegt ánægjuefni. Hann er á leiðinni hingað frá London til að fara í læknisskoðun. Vonandi fer hún vel og við vonumst til að hann verði tilbúinn fyrir leikinn á mánudagskvöld. Ég er gríðarlega ánægður,“ sagði Ferguson á fréttamannafundi í dag.