David Sullivan, annar af eigendum enska knattspyrnufélagsins West Ham, segir að félagið sé enn að borga niður skuldina vegna Tévez-málsins og það hafi mikil áhrif á hvað West Ham geti eytt í leikmenn í dag.
West Ham keypti Tévez frá Corinthians sumarið 2006 en var eftir tímabilið sektað um 5,5 milljónir punda þegar upp komst að Argentínumaðurinn var í eigu þriðja aðila.
Félagið samþykkti einnig að greiða Sheffield United 26,5 milljónir punda eftir að það kærði West Ham. Leit Sheffield United svo á að lið West Ham hafi haldið sér uppi í deildinni með ólöglegum hætti.
Sullivan viðurkennir að þessi upphæð hafi enn skaðleg áhrif á félagið og vegna hennar geti West Ham ekki beitt sér að fullu á leikmannamarkaðnum.
„Það eru enn vel yfir tíu milljónir sem við skuldum vegna Tévez-málsins, þrátt fyrir að við höfum verið að greiða það niður síðustu tvö ár,“ segir Sullivan í viðtali við The Mirror.
„Sú upphæð verður greidd á næstu tólf mánuðum og það hefur mikil áhrif á hvað við getum gert á leikmannamarkaðnum,“ segir Sullivan.
West Ham fékk samt sem áður níu nýja leikmenn til félagsins fyrir átökin í úrvalsdeildinni en Sullivan hrósar Sam Allardyce, knattspyrnustjóra liðsins, fyrir þau viðskipti.
„Við gerðum vel á markaðnum og fengum virkilega góða leikmenn til okkar þrátt fyrir takmarkaða sjóði.“