Michael Essien, leikmaður Chelsea, hefur verið lánaður til Spánarmeistara Real Madrid en þetta kemur fram á heimasíðu enska liðsins.
Essien á að leysa Lassana Diarra af hólmi en Diarra er á leið til rússneska peningaliðsins Anzhi Makhachkala.
Hjá Real Madrid hittir Essien gamla þjálfarann sinn José Mourinho sem keypti Essien til Chelsea sumarið 2005.
Essien hefur fallið aftar í goggunarröðina hjá Chelsea eftir að hafa glímt verið erfið meiðsli undanfarin misseri.