Íslendingaliðin Cardiff og Wolves eigast við í ensku B-deildinni í knattspyrnu klukkan 13.00 en aðeins einn af fjórum Íslendingum í liðunum byrjar inná.
Það er Heiðar Helguson sem er í fremstu víglínu Cardiff en Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði situr hinsvegar á varamannabekknum.
Landsliðsmennirnir Björn Bergmann Sigurðarson og Eggert Gunnþór Jónsson eru hvorugur í leikmannahópi Úlfanna í dag.