Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, segir að félagið eigi ekki möguleika á að keppa um leikmenn við fjársterkustu félögin í ensku úrvalsdeildinni sem liðið er að slást við um toppsætin ár eftir ár.
„Arsene Wenger hefur fjármuni til umráða fyrir leikmannakaup en það eru takmarkanir á því. Við getum ekki eytt 50 milljónum punda í einn leikmann. Ég tel að Stan Kroenke (aðaleigandi Arsenal) muni aldrei setja sömu peninga í kaup á mönnum og Roman Abramovich og Sheikh Mansour gera hjá Chelsea og Manchester City,“ sagði Hill-Wood í viðtali í blaðinu Evening Standard í dag.
„Þannig vill hann ekki reka félag og sem betur fer skilur Arsene það, enda með gráðu í hagfræði frá háskólanum í Strasbourg. Hann veit hvernig á að reka félag. Mörgum stuðningsmönnum gremst þetta en félögin þurfa að vera sjálfbær í sínum rekstri. Við ætlum ekki að fara á hausinn eins og nokkur velþekkt félög hafa gert. Rangers er víti til varnaðar fyrir alla. Þeir eyddu meiri fjármunum en þeir áttu,“ sagði Hill-Wood og vísaði til gjaldþrots skoska félagsins fyrr á árinu.
Hann telur að eftir sem áður geti Arsenal hæglega orðið enskur meistari í vetur.
„Við eigum fína möguleika á að slást um meistaratitilinn og ég sé enga ástæðu til að ætla annað en að við getum unnið hann í vetur. Stjórn félagsins hefur engar áhyggjur þó við höfum ekki unnið titil frá 2005. Það yrði frábært að vinna en það er ekki auðvelt. Sjáið bara Liverpool sem hefur ekki unnið titilinn í meira en 20 ár. Við erum mjög metnaðarfullir og viljim vinna. Ef við höfum ekki milljarða í olíupeningum til að slá um okkur með, verðum við að gera það öðruvísi. Það reynum við, með því að byggja upp lið á hæfileikaríkum leikmönnum,“ sagði stjórnarformaðurinn.