Agüero horfir til leiksins við Real Madrid

Agüero meiddist í fyrsta leik tímabilsins gegn Southampton.
Agüero meiddist í fyrsta leik tímabilsins gegn Southampton. AFP

Argentínski framherjinn Sergio Agüero hefur jafnað sig af hnémeiðslunum sem hann varð fyrir í fyrsta leik tímabilsins og er farinn að æfa með Manhcester City á nýjan leik.

Næsti leikur City er á útivelli gegn Stoke á laugardag en svo tekur við fyrsti leikur í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu gegn Real Madrid. Agüero var áður leikmaður Atlético Madrid og horfir því sérstaklega til þessa leiks.

„Ég náði aldrei að vinna þá með mínu liði en vonandi tekst það með City. Þetta verður erfitt. Í augnablikinu eru Real og Barcelona með tvö af bestu liðum heims en við erum líka með frábært lið,“ sagði Agüero.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert