Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, vonast til að ríkustu félög ensku úrvalsdeildarinnar sjái sóma sinn í því að fara eftir reglum UEFA sem stuðla eiga að því að félögin séu ekki rekin með tapi. Hann óttast að félögin beygi reglurnar með óeðlilegum styrktarsamningum.
Reglur UEFA tóku gildi frá og með síðustu leiktíð og ganga út á að félög séu að meðaltali ekki rekin með tapi yfir þriggja ára tímabil. Arsenal hefur ekki getað eytt sömu fjárhæðum og félög á borð við Manchester City og PSG en Wenger vonast til að leikurinn jafnist með nýju reglunum. Styrktarsamningar á borð við þann sem City gerði við Etihad Airways, sem tryggir félaginu nærri 400 milljónir punda yfir 10 ára tímabil, gætu þó komið í veg fyrir það.
„Ef styrktarsamningarnir eru bara leið til að beygja fjármálareglurnar eru menn ekkert að fara eftir reglunum,“ sagði Wenger við The Sun.
„Það gerir mér erfiðara fyrir því þá er bara verið að gera grín að þessum reglum. Styrktarsamningar áttu upphaflega að vera í samræmi við markaðsvirði og ég veit ekki hvort það er hægt að nota þá. En við höfum margoft rætt það hvað City gerir utan vallar. Innan vallar er liðið góð auglýsing fyrir fótboltann,“ sagði Wenger en Arsenal og City mætast á morgun í sannkölluðum stórleik kl. 15.