Arsenal tapaði í Norwich

Leikmenn Norwich fagna markinu sem Grant Holt skoraði gegn Arsenal …
Leikmenn Norwich fagna markinu sem Grant Holt skoraði gegn Arsenal í dag. AFP

Norwich lagði Arsenal að velli, 1:0, í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Carrow Road og náði þar með að innbyrða sinn fyrsta sigur á tímabilinu. Grant  Holt skoraði eina mark leiksins eftir 20 mínútur.

Arsenal er áfram með 12 stig í 9. sæti deildarinnar en Norwich er nú komið uppí 15. sætið með 6 stig, eftir að hafa setið í fallsæti fyrir leikinn.

90. Leik lokið og Norwich hirðir öll þrjú stigin.

45. Hálfleikur og Norwich er yfir, 1:0.

20. MARK - 1:0. Norwich er komið yfir. Alexander Tettey á hörkuskot að marki Arsenal, Vito Mannone markvörður heldur ekki boltanum og Grant Holt er fyrstur á hann og skorar.

Norwich: Ruddy, Russell Martin, Turner, Bassong, Garrido, Elliott Bennett, Johnson, Hoolahan, Tettey, Pilkington, Holt.
Varamenn: Rudd, Snodgrass, Howson, Jackson, Surman, Morison, Ryan Bennett.

Arsenal: Mannone, Jenkinson, Mertesacker, Vermaelen, Andre Santos, Ramsey, Arteta, Cazorla, Gervinho, Giroud, Podolski.
Varamenn: Martinez, Wilshere, Oxlade-Chamberlain, Djourou, Coquelin, Arshavin, Gnabry.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert