Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal hefur hvatt Theo Walcott til að ná samkomulagi við félagið um nýjan samning sem fyrst. Óvissan sé engum til góða en núgildandi samningur Walcotts við Arsenal rennur út í sumar.
„Það er mjög mikilvægt í okkar íþrótt að menn geti sýnt sínu félagi fullkomna tryggð, því ef menn gera það ekki þá eru þeir órólegir. Það er líka mikilvægt fyrir leikmannahópinn okkar að hann sýni hollustu. Ég efast ekki um að hann geri það en það kemur að því að hann þurfi að sýna það svart á hvítu,“ sagði Wenger.