David De Gea, markverði Manchester United, líkar lífið á Old Trafford og neitar því að vera á leið annað á næstunni en hann hefur verið orðaður við heimför til Spánar.
De Gea lék einn sinn besta leik fyrir United í gær þegar liðið gerði jafntefli, 1:1, við Real Madrid í Meistaradeildinni.
„Ég er mjög ánægður í Manchester og ég verð hamingjusamari með hverjum deginum,“ sagði De Gea við fréttamenn eftir leikinn.
„Þetta var frábær leikur. Real Madrid og Manchester United stóðu sig bæði mjög vel. Madrid er virkilega öflugt í sókn þannig að við þurftum að verjast vel.
Real Madrid þarf að sækja á Old Trafford. Þeir vita að þeir þurfa að vinna til að komast áfram þannig að við verðum að gera okkar besta í að stöðva þá,“ segir David De Gea.