Bale og Villas-Boas bestir í febrúar

Gareth Bale fagnar með Andre Villas-Boas og samherjum sínum í …
Gareth Bale fagnar með Andre Villas-Boas og samherjum sínum í leiknum gegn West Ham í vikunni þar sem hann skoraði tvö mörk. AFP

Gareth Bale, leikmaðurinn snjalli hjá Tottenham, var í dag útnefndur besti leikmaðurinn í febrúarmánuði í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Tottenham vann alla þrjá deildaleiki sína í mánuðinum og skoraði Bale fimm af sex mörkum liðsins í leikjunum.

Þá varð André Villas-Boas knattspyrnustjóri Tottenham útnefndur stjóri mánaðarins en Tottenham hefur verið á mikilli siglingu undir stjórn Portúgalans og er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert