Wenger: Getum unnið Bayern

Wenger hefur trú.
Wenger hefur trú. AFP

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er viss um að hans menn geti komið til baka gegn FC Bayern í Meistaradeildinni í kvöld og komist áfram í 8-liða úrslit.

Bæjarar unnu fyrri leikinn á Emirates-vellinum, 3:1, og eru því í afar góðri stöðu fyrir kvöldið. Ekki hjálpar til að Arsenal verður án Jack Wilshere í kvöld.

„Ég er viss um að ef þetta lið geti spilað góðan leik og náð góðum sigri. Við höfum barist fyrir góðum úrslitum í stórleikjunum á þessu tímabili. Við fáum aftur tækifæri til að gera það núna og vonandi grípur liðið tækifærið,“ segir Wenger.

„Ég ber mikla virðingu fyrir mínu liði en það hefur ekki enn uppskorið laun erfiða sinna. Það er mikilvægt fyrir okkur að við gerum það í þessum leik,“ segir Arsene Wenger.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert