Enskir fjölmiðlar reikna með því að Manchester United tilkynni á næsta sólarhring um að David Moyes taki við starfi Sir Alex Ferguson sem knattspyrnustjóri félagsins.
„Manchester United vonast til að ráða David Moyes sem eftirmann Sir Alex í lok vikunnar,“ segir í vefútgáfu Independent.
„Tilkynnt verður um ráðningu Manchester United á David Moyes í starf knattspyrnustjóra félagsins á næsta sólarhring,“ segir í vefútgáfu enska blaðsins The Times.
Engin viðbrögð hafa komið úr herbúðum Everton um það hvort Mancchester United hafi sett sig í samband við félagið.