Brasilíski knattspyrnumaðurinn Paulinho er í læknisskoðun hjá enska félaginu Tottenham Hotspur þessa stundina, samkvæmt frétt BBC, og talið er að hann verði jafnvel kynntur til sögunnar hjá félaginu síðar í dag.
Paulinho kom til London í gær en reiknað er með að Tottenham greiði Corinthians um 17 milljónir punda fyrir þenna 24 ára gamla miðjumann sem var kjörinn þriðji besti leikmaður Álfukeppninnar í Brasilíu sem lauk um síðustu helgi.